25.11.2007 | 17:24
Eru bestu verstu?
Ég fór í gær upp til Nottingham til að ferja heim mótorhjól fyrir góðan vin minn. Ég lenti ekki í útistöðum við fógetann og Hrói rukkaði fyrir hjólið
En í kuldamókinu á leiðinni heim þá datt mér í hug að þessi gríðarlegu mannvirki eru hættulega leiðinleg, hvernig væri að setja inn á tilkynningaskiltin eins og einn eða tvo brandara í stað þess að minna mann á tafir, umferðaþunga og önnur leiðindi.
En hvar ætli skemmtilegasti vegur í heimi liggi? Kjánarnir í TopGear skoðuðu málið ofan í kjölinn um daginn og ákváðu að Stelvio Pass sé málið.
Ég efast um að einhver hafi sofnað undir stýri á þessum kafla.
Hvar setti ég nú passann minn?
Athugasemdir
Ég hefði örugglega ekið hægar og notið útsýnisins
Ágúst H Bjarnason, 27.11.2007 kl. 21:28
Úff, ég fékk vott af lofthræðslu í byrjun myndbandsins. Hinsvegar minntu lokin á myndbandinu mig svolítið á leiðina norður til Akureyrar!! Maður þarf ekki að fara langt til að finna fegurðina. Ísland best í heimi?! P.S. Hver er Hrói?
María Björg Ágústsdóttir, 29.11.2007 kl. 14:57
Eh Nottingham, fógetinn, Hrói höttur... forgleym it
Ragnar Ágústsson, 2.12.2007 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.